Nýjast á Local Suðurnes

Erlendir farandverkamenn handteknir

Erlendir karlmenn sem hafa farið milli húsa á Suðurnesjum á undanförnum dögum til að bjóða þjónustu við þrif hafa verið íbúum þar til ama með framkomu sinni. Lögreglan á Suðurnesjum handtók fjóra þeirra í lok síðustu viku þar sem að minnsta kosti einn í  hópnum er með tengsl við skipulagðan farandbrotahóp sem tengist tugum mála sem varða fjársvik. Þá var einnig uppi grunur um að fjórmenningarnir hefðu ekki nægjanlegt fé fyrir uppihaldi sínu hér á landi. Lögregla tók af þeim skýrslur og voru þeir síðan látnir lausir. Þeir eru farnir úr landi.

Fleiri erlendir hópar hafa einnig boðið þjónustu við þrif, málun og fleira í umdæminu. Íbúi sem samdi við þrjá slíka um að þrífa hjá sér innkeyrsluna fyrir 40  þúsund krónur var rukkaður um 208 þúsund eftir að verkinu lauk. Hafði verið skrifað undir samning með fyrrgreindu upphæðinni en mennirnir tóku til við að hrella íbúann,  hringja linnulaust í hann og banka hjá honum til að fá sitt fram. Á endanum hringdi íbúinn í lögreglu sem gerði mönnunum að stöðva áreitið.

Lögreglan ráðleggur fólki að eiga ekki viðskipti við menn af þessu tagi