Nýjast á Local Suðurnes

Bókasöfnun gekk framar vonum – Ekki pláss fyrir fleiri bækur

Myllubakkaskóli óskaði á dögunum eftir bókum frá bæjarbúum í uppbyggingu á bókasafni skólans, eftir að öllum bókunum sem fyrir voru var eytt í kjölfar þess að mygla kom upp í húsnæðinu.

Viðbrögðin fórum fram úr björtustu vonum, segir í tilkynningu á vef skólans og er svo komið að vegna plássleysis er ekki mögulegt að taka við fleiri bókum. Í tilkynningunni er þeim þakkað kærlega sem tóku þátt í verkefninu.