Nýjast á Local Suðurnes

Hækka leiguverð um tugi þúsunda á mánuði með tveggja daga fyrirvara

-Leigufélagið Tjarnarverk ehf. á fjölda íbúða á Suðurnesjum

Innri - Njarðvík

Dæmi eru um að leigufélagið Tjarnarverk ehf., sem nýlega festi kaup á fjölda fasteigna á Suðurnesjum af Íbúðarlánasjóði, muni hækka leiguverð á íbúðum sínum um allt að 60 þúsund krónur á mánuði. Fyrirtækið tilkynnti leigjendum um hækkunina með ábyrgðarbréfi, en samkvæmt bréfinu tekur nýtt leiguverð gildi þann 1. júlí.

Í bréfinu sem Local Suðurnes hefur undir höndum og barst leigjanda sem ekki vildi koma fram undir nafni tilkynnir fyrirtækið hækkun sína með tveggja daga fyrirvara, í þessu tilfelli hljómar hækkunin uppá tæpar 60 þúsund krónur en leigjendur sem LS hefur haft samband við nefna hækkun upp á allt að 100 þúsund krónur.

Í bréfinu sem barst leigjendum segir meðal annars: „Frá og með 01.07.2015 mun leiguverð breytast þar sem Tjarnarverk ehf. Hefur keypt reksturinn af Íbúðarlánasjóði og er þitt leigufélag í dag. Því ber að tilkynna að endurnýja þarf húsaleigusamning við leigjendur. Fermetraverð mun breytast (sjá samning). Húsaleiga verður áfram tengd neysluvísitölu og endurskoðast á 1. árs fresti.“

Leigufélagið keypti meðal annars íbúðir í Tjarnarhverfi

Einn af leigjendunum sem Local Suðurnes ræddi við fannst tæplega 60 þúsund króna hækkun vera full mikið:

„Minn samningur – Sem ég vil meina að sé enn í gildi því honum hefur ekki verið sagt upp, hljómar uppá rétt rúmar 142 þús, og er tengdur neysluvísitölu. Nýji samningurinn, sem þeir ætlast til að taki gildi á morgun hljómar uppá tæpar 200 þúsund krónur.”

Miklar umræður hafa skapast um málið á Facebook, í hópnum “Íbúar Innri Njarðvíkur”, en þar segist einn leigjandi meðal annars hafa skrifað undir nýjan leigusamning við Íbúðarlánasjóð þann 1. maí sl. og verið tjáð þar að leiguverð myndi ekki hækka á næstunni.

Leigjendur hjá fyrirtækinu hafa sett sig í samband við Neytendasamtökin vegna málsins og bíða svars.

Forsvarsmenn Tjarnarverks ehf. höfðu ekki svarað fyrirspurn LS varðandi málið fyrir birtingu fréttarinnar.