Suðurnesjamennirnir sáu um markaskorunina fyrir U21 landsliðið – Dugði þó ekki til
![elias mar omarsson2](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/elias-mar-omarsson2.jpg?resize=620%2C264)
U21 árs landsliði Íslands tókst ekki að næla sér í sæti í lokeppni EM í Póllandi á næsta ári þegar liðið tapaði 2-4 gegn Úkraínu í lokaleik riðilsins í gærkvöld. Ísland endaði í 3. sæti riðilsins.
Suðurnesjamennirnir í liðinu stóðu þó fyrir sínu og sáu um markaskorunina í leiknum, Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson skoraði fyrra mark liðsins og kom Íslendingum þannig yfir á 22. mínútu. Keflvíkingurinn Elías Már Ólafsson skoraði svo síðara mark Íslands undir lok leiksins, en Elías Már átti mjög góðan leik í gær.
Mark Daníels má sjá hér.