Nýjast á Local Suðurnes

Safnahelgi á Suðurnesjum frestað vegna Covid 19

Ákvörðun hefur verið tekin um að fresta viðburðum á Safnahelgi 2020 um óákveðinn tíma vegna útbreiðslu Covid 19 veirunnar.

Fyrst var greint frá þessu á vef Sveitarfélagsins Voga, en þar kemur fram að ákvörðunin sé tekin að vandlega íhuguðu máli. Yfir tíu þúsund manns sóttu viðburði Safnahelgar á síðasta ári.

Fjölmargir viðburðir voru skipulagðir í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum, en til stóð að venju að ókeypis yrði á öll söfn á Suðurnesjum auk þess sem halda átti allskyns kynningar og viðburði.