Nýjast á Local Suðurnes

Reynir á samtakamátt íbúa – Leiðbeiningar frá HS Veitum

HS Veitur hafa sent frá sér tilkynningu vegna hraunflæðis sem nú rennur í átt að stofnlögn hitaveitu við Svartsengi

Áríðandi skilaboð til íbúa á Suðurnesjum:

Eldgos hófst í morgun á Reykjanesi. Hraunflæðið rennur nú í átt að stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ. Fari hraunflæði yfir lögnina er útlit fyrir að sú sviðsmynd raungerist að ekkert heitt vatn frá Svartsengi með þeim afleiðingum að heitavatnslaust verður í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Eins og hraðinn er á hraunflæðinu núna gæti það gerst á næstu klukkustundum.

Til að bregðast við slíkum atburði hefur verið unnið að lagningu nýrrar heitavatnslagnar í jörðu á þessu svæði. Búið er að leggja um 500 metra langan kafla þar sem ætlunin er að tengja ef gamla lögnin eyðileggst en það getur hinsvegar tekið einhverja daga að koma nýju lögninni í gagnið.

Búið að fylla á heitavatnstankana á Fitjum en til þess að heitavatnsbirgðirnar endist sem lengst til að halda hita á húsunum á þessu svæði biðjum við íbúa og atvinnulíf að lækka í hitakerfum í húsum og vera ekki að nota heitt vatn til baða í sturtu, baðkörum eða heitum pottum. Nú þegar er búið að skerða afhendingu á heitu vatni til stórnotenda.

Einnig er nú viðbúið að gripið verði til rafkyndingar sem rafdreifikerfi okkar er ekki hannað fyrir. Er biðlað til húseigenda að bíða með að hefja rafkyndingu í lengstu lög. Reynir svo á samtakamátt íbúa, ef til þess kemur, að hámarka rafkyndingu við 2,5 kW á hverja íbúð og fara á sama tíma í raforkusparandi aðgerðir, sjá ábendingar hér.

Hættan af of miklu álagi á rafdreifikerfið, jafnvel frá einni íbúð, er sú að öll gatan eða jafnvel allt kerfið slái út með tilheyrandi hættu á bilunum í jarðstrengjum eða dreifistöðvum, sem þá gæti tekið langan tíma að laga.

.