Nýjast á Local Suðurnes

Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2019, Súlunnar. Tilnefningar þarf að senda fyrir 12. október á netfangið sulan@reykjanesbaer.is eða í Ráðhúsið, Tjarnargötu 12.

Tilnefna skal einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Rökstuðningur þarf að fylgja tilnefningu.

Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna hér