Garðbúar duglegir að skreyta húsin á Sólseturshátíðinni
Við lok Sólseturshátíðar í Garði á dögunum komu saman fulltrúar sólseturshátíðar-, og umhverfisnefndar bæjarins og fóru yfir þau hús sem best þóttu skreytt yfir Sólseturshátíðina. Til stóð að velja best skreytta húsið í bænum, en borin var upp tillaga að velja eitt hús úr hverju hverfi og var hún samþykkt.
Nefndin valdi eftirfarandi hús sem þau best skreyttu í hverfunum.
Í rauða hverfi, Lyngbraut 4, í appelsínugula hverfi, Eyjaholt 5, í græna hverfi, Kjóaland 9 og í gula hverfi Sunnubraut 18.
Nefndirnar óska íbúum til hamingju með útnefninguna og þakkar öllum, þeim er skreyttu hús sín, fyrir þátttökuna.
Þess var einnig getið í fundargerð að hrósa sérstaklega íbúum við Sunnubraut fyrir mikla þátttöku, samheldni og samstöðu í fallegum skreytingum sem virka hvetjandi fyrir alla.