Nýjast á Local Suðurnes

Marta ráðin framkvæmdastjóri ABÍ

Mynd: Skjáskot / Youtube

Marta Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi sf. (ABÍ sf.) en félagið, sem hefur verið starfandi frá árinu 1971, er í eigu þeirra fjögurra tryggingafélaga sem bjóða upp á ökutækjatryggingar á Íslandi. 

Marta tekur við af Jóni Ólafssyni sem lætur nú af störfum sökum aldurs eftir farsælt starf en hann hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá árinu 2006.  

Marta starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf., en áður starfaði hún sem yfirlögfræðingur Umferðarstofu, sem deildarstjóri hjá Samgöngustofu og sem sérfræðingur hjá Innanríkisráðuneytinu en þar annaðist hún umferðar- og vegamál.