Nýjast á Local Suðurnes

Þróttur Vogum mun leika í 3. deild að ári

Þróttarar tóku á móti ÍH á Vogabæjarvelli í kvöld í leik um hvort liðið myndi leika í 3. deild að ári. Fyrri leik liðanna sem fram fór í Hafnarfirði lauk með 2-2 jafntefli og því ljóst að um úrslitaleik yrði að ræða í kvöld.

Þróttarar gerðu sér lítið fyrir og unnu sannfærandi sígur í kvöld, 5-2 og munu því eins og áður sagði leika í 3. deildinni að ári en fyrir í þeirri deild leika Víðir Garði og Reynir Sandgerði en Reynismenn eiga ágæta möguleika á að fara upp um deild.

Þróttarar lögðu Hvíta Riddarann af velli í 8-liða úrslitum á meðan ÍH vann KH en ÍH komu inn í úrslitakeppnina sem sigurvegarar A-riðils á meðan Þróttarar unnu C-riðilinn af miklu öryggi.