Nýjast á Local Suðurnes

Samráð við íbúa varðandi umferðarhraða

Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar ákvað á fundi sínum þann 5. september síðastliðinn að framkvæma könnun meðal íbúa í Grindavík á umferðarhraða innanbæjar í sveitarfélaginu.

Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar við vinnslu stefnu Grindavíkurbæjar um umferðaröryggismál.

Könnunin er nafnlaus og ekki verður hægt að rekja svör til þátttakenda.

Könnunin er opin til 21. september nk.

Taka könnun HÉR