Nýjast á Local Suðurnes

Erna Freydís hlaut Áslaugarbikarinn og Snjólfur Marel Elfarsbikarinn

Erna Freydìs Traustadòttir hlaut í dag Áslaug­ar­bik­ar­inn á lokahófi yngri flokka Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Bikarinn er af­hent­ur þeim leik­manni í kvenna­flokki Njarðvík­ur í körfu­bolta sem þykir skara framúr. Áslaugarbikarinn er farandbikar, sem gefinn var af fjöl­skyldu Áslaug­ar heit­inn­ar Óla­dótt­ur, sem lést árið 2000. Áslaug­ lék í yngri flokk­um UMFN og var einnig öfl­ug í starfi hjá Ung­lingaráði félagsins.

Þá hlaut Snjòlfur Marel Stefànsson Elfarsbikarinn, en þar er einnig um að ræða farandbikar sem veittur er efnilegasta leikmanni karlaliðs Njarðvíkur. Elfars­bik­ar­inn er gef­inn af fjöl­skyldu Elfars heit­ins Jóns­son­ar sem lést árið 1988. Líkt og Áslaug lék Elfar með yngri flokkum félagsins.