Nýjast á Local Suðurnes

Fimm leikja bann og 100.000 króna sekt vegna kynþáttaníðs

Aganefnd KSÍ dæmdi í gær Ivan Jelic, markvörð Reynis Sandgerði, í fimm leikja bann vegna kynþáttaníðs hans í leik KF og Reynis í 2. deildinni 10. september. Frá þessu er greint á vefnum fótbolti.net.

Í skýrslu dómara leiksins kemur fram að Jelic hafi verið með fordóma í garð Júlio Fernandes, leikmanns KF. Jelic hrópaði „Fucking little monkey” að honum eftir að hann skoraði.

Jelic fékk að líta rauða spjaldið og hefur nú verið dæmdur í bann en auk þess fær Reynir Sandgerði 100 þúsund krónur í sekt, segir í fréttinni.

„Í samtali okkar við leikmanninn þvertekur hann fyrir að rasísk meining hafi legið að baki þessara orða og vill meina að þetta hafi verið einkar óheppileg þýðing af króatísku blóti. Hann og umræddur leikmaður KF ræddu saman á fljótlega eftir atvikið og bað Ivan hann afsökunar á þessum ummælum,” kemur meðal annars fram í greinargerð Reynis vegna málsins.

„Stjórn Knattspyrnudeildar Reynis vill árétta að hún fordæmir alla kynþáttafordóma. Félagið er í samfélagi þar sem stór hluti íbúa er innflytjendur og sömuleiðis margir iðkendur félagsins í yngri flokkum sem og meistaraflokki.”