Nýjast á Local Suðurnes

Mikið um skemmdarverk – Foreldrar ræði við börn sín

Borið hefur á slæmri umgengni á leikskólalóðinni við Sólborg í Suðurnesjabæ undanfarið, meðal annars hafa verið unnin skemmdarverk á leiktækjum, grindverki og bekkjum auk þess sem þar hefur verið skilið eftir rusl eins og sælgætisbréf, gosflöskur og fleira.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins, en þar eru foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að ræða þessi mál við börn sín að reyna eftir mætti að koma í veg fyrir þessa slæmu umgengi.

Suðurnesjabær vill að lóðin umhverfis leikskólann og leiktæki á henni séu opin almenningi utan opnunartíma en svo það sé hægt þarf að ganga um svæðið af virðingu þannig að leikskólabörn geti notið svæðisins á opnunartíma skólans, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Mynd: Suðurnesjabær