Nýjast á Local Suðurnes

Uppfylla ekki lágmarksviðmið eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur úrskurðað að samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2021 uppfylli sveitarfélagið Reykjanesbær ekki lágmarksviðmið eftirlitsnefndar.

Erindi þessa efnis var tekið fyrir á bæjarráðsfundi á dögunum. Í erindinu frá Eftirlitsnefnd, sem finna má á vef sveitarfélagsins segir meðal annars:

“Þrátt fyrir bráðabirgðaákvæði VII í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 þar sem sveitarstjórnum er heimilt að víkja frá skilyrðum um jafnvægisreglu og skuldareglu út árið 2025 vill EFS benda sveitarstjórn á að árið 2026 þarf að uppfylla framangreind skilyrði.

Sveitarstjórn ber ábyrgð á fjárhag sveitarfélags og skal gera EFS viðvart telji hún að fjármál sveitarfélags eða einstakar fjárhagslegar ráðstafanir séu ekki í samræmi við sveitarstjórnarlög eða fjármál sveitarfélags stefni að öðru leyti í óefni.

Eftirlitsnefndin leggur áherslu á það við sveitarstjórn að nauðsynlegt sé að fara vel yfir fjárhagslegar forsendur sveitarfélagsins til að ná framangreindum lágmarksviðmiðum. Sveitarstjórn er jafnframt hvött til að hafa samband við eftirlitsnefnd óski hún eftir upplýsingum eða leiðbeiningum.“