Nýjast á Local Suðurnes

Um 30 starfsmenn á leikskólum nýta námssamning

Reykjanesbær hefur boðið ófaglærðu starfsfólki í leikskólum sem fer í leikskólakennaranám að gera námssamning. Samningurinn gefur starfsfólki kost á að halda óskertum launum þegar það er frá vinnu vegna náms til dæmis í námslotum, vettvangsnámi og prófum.

Í september 2023 voru 28 starfsmenn frá leikskólum bæjarins í leikskóla- kennaranámi með starfi, þar af 12 nýnemar, segir í fundargerð menntaráðs Reykjanesbæjar.

Samningurinn er einnig í boði fyrir þau sem stunda nám í þroskaþjálfun og uppeldis- og menntunarfræðum í HÍ.