Nýjast á Local Suðurnes

Þiggja ekki launahækkun

Samkvæmt samningum ættu laun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar að hækka í samræmi við þingfararkaup í júlí næstkomandi, en launin eru hlutfall af launum þingmanna og eru hlutastörf.

Málið var rætt á fundi bæjarráðs og bar Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi samfylkingar, upp þá tillögu að bæjarráðsfulltrúar féllu frá fyrirhuguðum launahækkunum samfara hækkun þingfararkaups. Tillagan var samþykkt samhljóða.