Nýjast á Local Suðurnes

Pétur á að endurvekja Keflavíkurhraðlestina

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ráðið Pétur Ingvarsson sem þjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil í Subway deild karla.

Pétur hefur þjálfað Breiðablik undanfarin ár. Samningurinn við Keflavík er to tveggja ára.

“Pétur segist vera afar spenntur fyrir nýju verkefni og það er mikil tilhlökkun að byrja næsta tímabil í Keflavík. Ég er sannfærður um að við getum komið liðinu á þann stall sem við viljum hafa það. Verkefnið að endurvekja Keflavíkurhraðlestina er formlega hafið.” Sagði formaður félagsins við undirritun samninga í dag.