Nýjast á Local Suðurnes

Stunda stórhættulegt athæfi við Reykjanesvirkjun – Mikil hætta á skelfilegum afleiðingum

Nokkuð hefur borið á því uppá síðkastið að fólk sé að baða sig í affalli Reykjanesvirkjunar. Þetta athæfi er bæði stranglega bannað og stórhættulegt eins og kemur fram á þeim merkingum sem eru á staðnum. Vatnið sem kemur úr affallinu er alla jafna um 35 gráðu heitt en það er þó stórhættulegt að baða sig í affallinu þar sem að hitinn getur skyndilega aukist í allt að 100 gráður ef að aðstæður í orkuverinu breytast. Ef það myndi gerast er ljóst að afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS-Orku, en þar er jafnframt bent á að það sé mjög straumhart í sjónum þarna og mikil hætta á því að þeir sem lenda í straumnum sogist langt frá landi mjög skyndilega og geti sér engar bjargir veitt.

HS Orka vill því ítreka við alla að það er stranglega bannað að fara ofan í sjóinn við affallið. Þetta er ekki náttúrulaug eins og hefur verið haldið fram á samfélagsmiðlum heldur affall frá orkuveri sem getur verið mjög breytilegt eftir aðstæðum.

Á svæðinu eru fyrir merkingar á tveimur stöðum en í ljósi framangreinds mun HS Orka auka merkingar til að öllum sem þarna fara um sé ljóst að þarna sé stórhætta á ferð.