Nýjast á Local Suðurnes

Skilaði peningaveski sem var stútfullt af seðlum

Óþekktur aðili kom á lögreglustöðina við Hringbraut í dag og skilaði inn veski sem hann fann á bensínstöð í umdæminu. Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Það er nú kannski ekki það sem ritara finnst markverðast heldur það að í veskinu var talsvert magn af reiðufé ásamt skilríkjum eiganda. Haft var uppi á eiganda veskisins og kom hún nú í kvöld og sótti veskið sitt. Eigandinn sem var erlendur ferðamaður og eldri kona felldi tár af gleði er hún sótti veskið sitt og vildi hún senda þessum óþekkta og strangheiðarlega vegfarenda “risa knús” fyrir skilvísina.
Vel gert ….. Segir lögreglan í Facebookfærslunni