Ekkert smit og fólki í sóttkví fækkar verulega
Ekkert nýtt kórónuveirusmit greindist á Suðurnesjum síðasta sólarhringinn, en nú eru 72 einstaklingar smitaðir af veirunni á Suðurnesjasvæðinu samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.
Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, en nú sæta 184 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en voru vel á fimmta hundrað þegar mest var.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.