Nýjast á Local Suðurnes

Póstberi kærði hundsbit

Póstberi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum hefur lagt fram kæru eftir að hundur beit hann nýverið þegar hann var við störf sín.

Tveir hundar voru lausir við hús þar sem póstberinn var að bera út og stökk annar þeirra á hann og beit hann í magann. Maðurinn fékk sár eftir bitið og fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja hefur verið gert viðvart um málið.