Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær býður út skólamatinn

Reykjanesbær hefur óskað eftir tilboðum í framleiðslu og framreiðslu á skólamat fyrir alla grunnskóla sveitarfélagsins, sem eru sex talsins.

Verkið felst í því að framleiða matinn og afhenda á tilteknum tíma og framreiða ásamt samantekt (uppvask) og frágangi að máltíð lokinni ásamt því að farga úrgangi sem til fellur vegna verksins. Í auglýsingu er tekið fram að gengið skuli út frá því að viðhöfð sé sjálfsskömmtun, þar sem börnin eru vön því frá leikskóla. Einnig er óskað eftir tilboðum í síðdegishressingu fyrir nemendur í frístundaskóla.

Markmið með rekstri mötuneyta í grunnskólum Reykjanesbæjar er að bjóða upp á heilsusamlegan og fjölbreyttan matseðil sem fylgir ráðleggingum um mataræði og næringargildi sem finna má í handbók Lýðheilsustöðvar um skólamötuneyti.

Þá er tekið fram að bjóðandi skuli gera ráð fyrir að þurfa að bjóða upp á sérfæði fyrir nemendur sem af heilsufarslegum ástæðum gætu þurft á slíku sérfæði að halda, svo sem vegna ofnæmis eða efnaskiptasjúkdóma. Einnig fyrir nemendur sem af trúarlegum ástæðum þurfa á sérfæði að halda.