Nýjast á Local Suðurnes

Rafmagnslaust í Innri – Njarðvík og Vogum með stuttu millibili

Rafmagn fór af Innri-Njarðvík, Vogum og Fitjum um klukkan 23:30 í gærkvöldi, vegna bilunar í tengivirki á Ásbrú. Rafmagnslaust var í um hálftíma. Þá varð útleysing í gagnaveri Verne Global á svipuðum tíma og tók um tvær klukkustundir að finna og gera við þá bilun.

Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem rafmagn fer af vegna bilunar á þessum sömu svæðum, en fyrir um hálfum mánuði fór rafmagn af, einnig í um hálftíma. Þá um miðjan dag með þeim afleiðingum að loka þurfti verslunum og bensínafgreiðslu á Fitjum.