Mikilvægt að auka fjármagn og semja strax við verktaka

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fór yfir helstu punkta úr skýrslu umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna fyrirspurnar um snjómokstur í sveitarfélaginu, sem barst frá Sjálfstæðisflokki á bæjarstjórnarfundi þann 3. janúar 2023.
Í skýrslu umhverfis- og framkvæmdasviðs kom meðal annars fram að fjárframlög til málaflokksins hafi lækkað eða staðið í stað frá ári til árs undanfarin ár og að tækjakostur verktaka hafi breyst þar sem ekki er gert út á snjómokstur af þeirra hálfu, auk þess sem samningar við verktaka hafi verið runnir úr gildi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn lögðu fram bókun í kjölfar umræðu um málið þar sem fram kemur meðal annars að mikilvægt að strax verði gerður samningur við verktaka varðandi snjómokstur og að bæjarstjórn fái erindi frá Umhverfis-og skipulagsráði um aukningu fjármagns í málaflokkinn. Fulltrúi Umbótar í bæjarstjórn tók undir sjónarmið Sjálfstæðisflokksins.
Bókun Sjálfstæðisflokksins í heild:
„Fyrir jólin 2022 skall á mikil snjókoma, meiri en hefur sést í langan tíma. Eðlilega kom þetta öllum að óvörum og voru viðbragðsaðilar ekki viðbúnir svona óvæntu óveðri.
Starfsfólk Reykjanesbæjar vann nótt við dag við hreinsun á bænum og gekk það samt ekki nægjanlega vel enda var ekki einfalt að fá vélar þegar ekki var samningur við verktaka um snjómokstur.
Sjálfstæðisflokkurinn þakkar starfsfólki sem kom að snjómokstri og vinnu í kringum hana fyrir fórnfúst starf. Auk þess þakkar Sjálfstæðisflokkurinn fyrir greinagóða skýrslu frá Umhverfis-og framkvæmdasviði um snjómokstur í Reykjanesbæ.
Þrátt fyrir framangreint lýsir Sjálfstæðisflokkurinn vonbrigðum með að ekki sé enn búið að ná tökum á snjómokstrinum, nú fjórum vikur síðar.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að strax verði gerður samningur við verktaka varðandi snjómokstur og að bæjarstjórn fái erindi frá Umhverfis-og skipulagsráði um aukningu fjármagns í málaflokkinn þannig að möguleiki sé á að bregðast hratt við ef þvílíka aðstæður koma upp aftur. Upplýsingar til íbúa hvernig forgangsröðun og skipulag snjómoksturs er háttað þarf að bæta. Eins væri gott að læra af þeim sveitarfélögum sem hafa verið til fyrirmyndar í þessum málum.“