Grindvíkingar hamingjusamastir
![grindavik](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/grindavik.jpg?resize=620%2C264)
Grindavík er hamingjusamasta sveitarfélag landsins samkvæmt nýrri könnun Embættis landlæknis á hamingju Íslendinga. Niðurstöðurnar voru kynntar í dag, á alþjóðlega hamingjudeginum.
Þegar hamingja er skoðuð eftir sveitarfélögum trónir Grindavík á toppnum. Í könnuninni eru íbúar spurðir hvernig þeim líður á skalanum 1-10 þar sem 1-3 merkir óhamingjusamur, 4-7 hvorki né og 8-10 hamingjusamur. Grindavík er í efsta sæti með 8. Þar á eftir koma Akranes, Hveragerði og Fjarðabyggð með 7,9.
Ef svörin eru skoðuð eftir því hvort íbúar telja sig hamingjusama, óhamingjusama eða hvorki né sést að 73,2% svarenda í Grindavík eru hamingjusamir en aðeins 3,3% óhamingjusamir.