Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurbær býður út stækkun á bæjarskrifstofum

Grindavíkurbær hefur óskað eftir tilboðum í verkið „Bæjarskrifstofur Grindavíkur, innanhússbreytingar”, en stefnt er á að stækka skrifstofurnar um 127 m²

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Endurbætur og stækkun á skrifstofuhúsnæði bæjarskrifstofa Grindavíkur sem staðsettar eru á 2. og 3. hæð í verslunar og þjónustumiðstöð Grindavíkur, Víkurbraut 62. Í megindráttum eru bæjarskrifstofur Grindavíkur að stækka sig inn í 127 m² rými, þar sem áður var Bókasafn Grindavíkur, ásamt endurbótum á núverandi húsnæði.

Helstu verkþættir eru: Rif og förgun, veggir, loft, gólf, hurðar, stálsmíði, málun, innréttingar, raflagnir og loftræsting.

Verkinu skal að fullu lokið þann 1. júní 2016.

Hægt verður að nálgast útboðsgögn á bæjarskrifstofu Grindavíkur, Víkurbraut 62, 240 Grindavík frá og með 26. október n.k. eða óska eftir gögnum á tölvutæku formi án endurgjalds á netfangið armann@grindavík.is eða í síma 420-1107.