Fríhöfnin segir upp starfsfólki

Sex starfsmönnum Fríhafnarinnar í Leifsstöð hefur verið sagt upp störfum í kjölfar rekstrarstöðvunar lággjaldaflugfélagsins WOW-air.
Þetta kemur fram á vef DV, en samkvæmt heimildum vefmiðilsins eru uppsagnirnar vegna minnkandi umsvifa sem fyrirtækið sér fram á vegna þess skarðs sem gjaldþrot WOW-air skilur eftir sig.