Nýjast á Local Suðurnes

Fimm sjómenn heiðraðir á sjómannadaginn

Sjómannadagsráð Grindavíkur hefur viðhaft þann sið um áratuga skeið að heiðra nokkra aldraða grindvíska sjómenn á sjómannadaginn. Í ár var engin undantekning og voru fimm sjómenn sæmdir heiðursmerki Sjómanna- og vélstjórafélagsins við hátíðlega athöfn sunnudaginn 5. júní. Í ár voru það þeir Einar B. Bjarnason, Guðmundur K. Tómasson, Helgi Theódór Andersen, Sveinn Þ.Ísaksson og Þorsteinn Óskarsson sem hlutu viðurkenninguna.

Myndina, sem birt var á heimasíðu Grindavíkurbæjar tók Eyjólfur Vilbergsson, en á henni eru frá vinstri ásamt mökum frá vinstri: Sveinn Þ.Ísaksson, Þorsteinn Óskarsson, Einar B. Bjarnason og Guðmundur K . Tómasson, en Helgi Theódór Andersen átti ekki heimangengt vegna veikinda.