Nýjast á Local Suðurnes

Breytingar á HSS eftir að neyðarstig tók gildi

Þar sem neyðarstig almannavarna tók gildi á miðnætti verða flestir læknatímar Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á dagtíma hringdir út þar til annað verður gefið út.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Þar segir jafnframt að slysa- og bráðamóttaka verði áfram opin allan sólarhringinn og læknavaktin síðdegis og um helgar verður áfram opin, en skjólstæðingar eru beðnir um að hringja á undan sér í síma 422-0500 og bóka tíma.

Einnig kemur fram í tilkynningunni ap þjónusta á HSS gæti tekið breytingum eftir því sem á líður, þannig að rétt er að fylgjast vel með tilkynningum á Facebooksíðu HSS og á heimasíðunni næstu daga.