Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarins beztu opna á Fitjum – Frábær tilboð út janúar

Bæjarins beztu hafa opnað í Orkustöðinni á Fitjum í Reykjanesbæ. Fyrirtækið rekur þar með tvo sölustaði á Suðurnesjum, en áður hafði fyrirtækið opnað í verslun 10/11 í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Boðið er upp á veglegt tilboð í tilefni opnunarinnar hvar viðskiptavinum býðst að kaupa tvær pylsur á verði einnar út janúarmánuð.