Nýjast á Local Suðurnes

Afsökunarbeiðni frá Njarðvík – Írena Sól lagði skóna á hilluna

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sent frá sér tilkynningu vegna félagaskipta Irenu Sólar Jónsdóttur á dögunum, en þar munu Njarðvíkingar hafa ritað nafn formanns körfuknattleiksdeildar Keflavíkur á félagaskiptapappíra. Í tilkynningunni biðjast Njarðvíkingar afsökunar á þessari háttsemi.

Félagaskiptin voru í kjölfarið dregin til baka af KKÍ. Írena Sól tilkynnti svo skömmu síðar að hún væri hætt að leika körfubolta.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur harmar þau vinnubrögð sem höfð voru varðandi félagsskipti leikmanns Keflavíkur…

Posted by Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur on Thursday, 8 February 2024