Nýjast á Local Suðurnes

500 manns tóku þátt í hópslysaæfingu á Keflavíkurflugvelli – Myndir!

Yfir 500 manns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli í dag. Æfingin er ein stærsta hópslysaæfing sem haldin hefur verið á Íslandi og eru æfingar sem þessar mjög mikilvægar heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða.

Isavia heldur utan um skipulag æfinganna en mikill fjöldi annarra viðbragðsaðila kemur að þeim, svo sem starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar, starfsmenn sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, prestar, rannsóknaraðilar auk fjölda annarra. Flugslysaæfingar sem þessar eru að jafnaði haldnar á um fjögurra ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem starfrækt er áætlunarflug og hefur Isavia haldið yfir 40 flugslysaæfingar frá árinu 1996.

Sett var á svið flugslys þar sem þota með 150 einstaklinga um borð lenti utan vallar vestan við suðurenda norður-suður flugbrautarinnar. Vettvangurinn var gerður mjög raunverulegur en kveikt var í bílflökum til þess að líkja eftir flugvélabúk, sjúklingar voru farðaðir og allt gert til þess að gera hann sem líkastan raunverulegu slysi. Æfingin gekk vel en að henni lokinni munu allir þættir hennar verða rýndir og farið yfir þau atriði sem mætti bæta.

flugslysaaefingkef2016_web-17

 

flugslysaaefingkef2016_web-9

 

flugslysaaefingkef2016_web-7

 

flugslysaaefingkef2016-cover

 

hopslysaaefing