Rapid með tilboð í Arnór – “Félag sem hentar mér vel sem mitt næsta skref á ferlinum”
![arnor ingvi norrkoping](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/arnor-yngvi-norrkoping.jpg?resize=620%2C264)
Arnór Ingvi Traustason, fyrrum leikmaður Njarðvíkur og Keflavíkur og landsliðsmaður í knattspyrnu, segir í viðtali við sænska blaðið Expressen í dag að hann vonist til þess að lið hans Norrköping komist að samkomulagi við Rapid Vín í Austurríki um sölu á honum þangað í sumar.
Fram kom á Fótbolta.net í gær að Rapid hefði gert Norrköping tilboð í Arnór.
„Ég vona að þetta gangi eftir því ég tel að þetta yrði gott skref fyrir mig að taka í sumar. Ég tel að þetta sé félag sem henti mér vel sem mitt næsta skref á ferlinum. Ekki oft stórt en gott félag sem er nánast árlega í Evrópudeildinni eða Meistaradeildinni og berst alltaf um efstu sætin í austurrísku deildinni. Þeir eru að byggja nýjan leikvang og ég hef mikinn áhuga á að fara þangað,” segir Arnór við Expressen.