Nýjast á Local Suðurnes

Grindvíkingar velja stuðningsmann ársins

Kjör á íþróttmanni og íþróttakonu Grindvíkur verður að venju lýst á gamlársdag. Hófið fer fram að þessu sinni í Gjánni, nýrri félagsaðstöðu UMFG og Kvenfélags Grindavíkur og hefst kl. 13:00. Kjörið er öllum opið og Grindvíkingar hvattir til þess að fagna glæsilegu íþróttaári með íþróttafólkinu.

Á meðal nýjunga að þessu sinni verður val á Stuðningsmanni ársins. Óskað er eftir tilnefningum frá bæjarbúum á netfangið kosning@umfg.is, í seinasta lagi næsta sunnudagskvöld. Stuðningsmaður ársins getur verið sá einstaklingur sem hefur stutt við bakið á grasrótarstarfi íþróttahreyfingarinnar með einum eða öðrum hætti.