Nýjast á Local Suðurnes

Heiðarhraun 26 best skreytta hús Grindavíkur – Stílhrein og friðsæl skreyting

Rafverktakafyrirtækið TG Raf í Grindavík stóð fyrir leitinni að best skreytta húsinu í Grindavík yfir hátíðirnar. Sérstök dómnefnd var fengin til að skera út um hvert væri best skreytta húsið og var 49″ Samsung sjónvarp í verðlaun.

Það voru nokkur hús sem komu til greina sem sigurvegari en dómnefndin valdi Heiðarhraun 26 sem best skreytta hús Grindavíkur árið 2016. Í umsögn var sagt að skreytingin á Heiðarhrauni 26 væri virkilega stílhrein, friðsæl og vönduð.

Húsráðendur eru þau Bergvin Ólafarson og Hildur María Brynjólfsdóttir.