Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík og Mustad Autoline í samstarf

Íþróttahús Grindavíkur, sem um árabil hefur borið nafnið Röstin, hefur fengið nýtt nafn. Í hálfleik í viðureign Grindavíkur og Vals síðastliðinn laugardag skrifuðu körfuknattleiksdeildin og norska fyrirtækið Mustad Autoline undir samstarfssamning og mun íþróttahúsið því bera nafnið „Mustad höllin“ til næstu þriggja ára í það minnsta.

mustadhollin2

Frá undirskrift samningsins – Mynd: Grindavíkurbær