Nýjast á Local Suðurnes

Unnið við tengingar hitaveitu í 14 gráðu frosti

Unnið var við tengingar á stofnlögn hitaveitu frá Svartsengi í alla nótt. Ríkir bjartsýni um að það takist að hleypa heitu vatni á lögnina þegar líður á daginn eða kvöldið.

Unnið var bið báða enda lagnarinnst og segir í tilkynningu frá HS Orku að báðum verkum hafi miðað ágætlega en hafi þó tekið nokkru lengri tíma en áætlað var, meðal annars þar sem lengri tíma tók að tæma lögnina af vatni. Þurfti að gata æðina til að flýta fyrir tæmingu.

Fimbulkuldi var á svæðinu í nótt og fór frostið mest í 14 gráður. Aðstæður eru auk þess afar erfiðar við hraunjaðarinn norðanmegin og aðgengi torvelt.

Þá er tekið fram að það séu HD tæknilausnir og stálsmiðjan Framtak sem sjá um smíði tenginganna og verktakafyrirtækið Ellert Skúlason sem sér um jarðvegsvinnu. Um tuttugu manns unnu í alla nótt að því að koma heitu vatni aftur á Suðurnesin.