Nýjast á Local Suðurnes

Tveir strætóárekstrar á viku

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Strætisvagnar og bifreiðir lentu saman tvívegis í vikunni, en alls hafa orðið níu umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar í vikunni.

Í gærkvöld varð aftanákeyrsla í Njarðvík með þeim afleiðingum að ökumaður annarar bifreiðarinnar steig óvart á bensíngjöfina og hafnaði bifreið hans á tveimur kyrrstæðum bifreiðum í bifreiðastæði.

Talsvert tjón varð í  óhöppunum en engin alvarleg meiðsl á fólki.

Þá voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og meintan vímuefnaakstur.