Tveir snarpir og 40 eftirskjálftar við Grindavík
![grindavik](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/grindavik.jpg?resize=620%2C264)
Tveir jarðskjálftar af stærðinni 3,2 og 4,1 riðu yfir með skömmu millibili laust fyrir klukkan sex í morgun.
Skjálftarnir eiga upptök sín rétt norðan Grindavíkur, skammt frá Bláa lóninu. Þeir fundust báðir vel í Grindavík og í Reykjanesbæ.
Fram kemur í máli náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands að um fjörutíu smærri eftirskjálftar hafi mælst.