Nýjast á Local Suðurnes

Þriggja bíla árekstur í Reykjanesbæ og bílvelta á Grindavíkurvegi

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Þriggja bíla árekstur varð í Reykjanesbæ í morgun. Engin slys urðu á fólki en nokkurt tjón á farartækjunum.

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum en sem betur fer ekki mikið um slys tengdum þeim. Þó má nefna bílveltu á Grindavíkurvegi í gær þar sem tvennt var flutt á bráðamótttöku Landspítalans í Fossvogi og hið þriðja á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ökumaður þeirrar bifreiðar játaði neyslu fíkniefna og í og í kringum bifreiðina fundu lögreglumenn talsvert magn af áhöldum til fíkniefnaneyslu.

Loks varð bílvelta, einnig á Grindavíkurvegi. Fjórir voru í þeirri bifreið og héldu bílbelti bifreiðarinnar sem var á hvolfi, þeim föstum þegar lögreglu bar að. Ökumaðurinn og farþegarnir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.