Sara GK komin á flot – Sjáðu myndirnar!

Sara GK, sem losnaði frá bryggju í Sandgerði í óveðrinu sem gekk yfir suðvesturhorn landsins í nótt er komin á flot og virðist báturinn vera óskemmdur.
Áhöfnin á björgunarbátnum Þorsteini sá um að draga af hina 10 tonna Söru GK af strandstað og gekk verkið vel.
Myndir: Reynir Sveinsson.

