Nýjast á Local Suðurnes

Lítið um tjón í Reykjanesbæ í veðurofsanum

Myndin er úr safni Björgunarsveitarinnar Suðurnes og tengist fréttinni ekki beint

Að sögn Lögreglunnar á Suðurnesjum slapp Reykjanesbær vel undan veðurofsanum í gærkvöldi og nótt. Einhverjar skemmdir urðu þó á húsum neðarlega við Hafnargötu og þurftu björgunarsveitarmenn að hreinsa plötur sem fuku af húsum. Verið er að kanna skemmdirnar. Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins.

Reykjanesbrautin var opnuð á ný kl. 01 í nótt og þá var veður að mestu gengið niður, að sögn lögreglu. Íbúar voru litið á ferð samkvæmt tilmælum en veðrið var verst milli 21 og 24 í gærkvöldi.

Leið 55 milli Reykjanesbæjar og Hafnarfjarðar gengur eðlilega í dag, samkvæmt upplýsingum á straeto.is og stætó innanbæjar í Reykjanesbæjar eru einnig á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá SBK.

Skólahald í Reykjanesbæ er allt með eðlilegum hætti í dag.