Kórónuveirusmit komið upp í tveimur grunnskólum
![heidarskoli](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/heidarskoli.jpg?resize=620%2C264)
Komið hefur upp kórónuveirusmit í tveimur grunnskólum í Reykjanesbæ og er einn bekkur í sóttkví.
Þetta kemur fram í fundargerð neyðarstjórnar Reykjanesbæjar frá því í gær. Þar kemur fram að um sé að ræða einn bekk í Holtaskóla og samkvæmt heimildum er um að ræða einn starfsmann í Heiðarskóla og eru tveir í sóttkví vegna þess. Samkvæmt fundargerðinni er því einn bekkur í sóttkví ásamt nokkrum kennurum og einum stuðningsfulltrúa.
Samkvæmt heimasíðum skólanna tveggja gekk kennsla vel í síðustu viku og verður haldið áfram með sama hætti í þeirri næstu.