Nýjast á Local Suðurnes

Hafa áhyggjur af mönnun skóla og leikskóla

Stjórnendur í leikskólum í Reykjanesbæ lýsa yfir áhyggjum af því að í ljósi fjölgunar leikskóla og stækkunar annarra skóla sé hætt við að ekki verði hægt að fullmanna alla skóla bæjarins í haust, en erindi þessa efnis var tekið fyrir á fundi menntaráðs á dögunum.

Menntaráð leggur til að starfshópur verði myndaður til að skoða starfsaðstæður barna og starfsfólks í leikskólum Reykjanesbæjar nánar til að mæta þeim áhyggjum sem leikskólastjórnendur lýsa yfir, koma með tillögur til úrbóta og kostnaðarmat þeirra.

Lagt er til að í hópnum verði leikskólafulltrúi, sviðsstjóri menntasviðs, mannauðsstjóri, kjörnir fulltrúar í menntaráði, fulltrúi leikskólastjóra, fulltrúi leikskólakennara, fulltrúi starfsfólks leikskóla og fulltrúi foreldra leikskólabarna.