Hluti Keflavíkur án rafmagns frá miðnætti
![ljosleidari lagnir rafmagnslagnir](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/conduit-166802_1280.jpg?resize=620%2C264)
Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð við Framnesveg í Reykjanesbæ, Mánudaginn. 17.08.20 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 (miðnætti) og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00 að morgni 18.08.20
![](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2020/08/dre-007.jpg)