Heilsuspillandi starfsumhverfi í skólum – Geta ekki veitt upplýsingar um heilsufar starfsfólks

Fræðsluráð Reykjanesbæjar lagði fram eftirfarandi bókun, varðandi veikindi starfsfólks Holtaskóla, á fundi sínum á dögunum. Bókunin er lögð fram í kjölfar fyrirspurnar varðandi veikindi starfsfólks vegna heilsuspillandi umhverfis.
Í bókuninni kemur meðal annars fram að ráðið hefur ekki aðgang að þeim upplýsingum sem óskað var eftir, enda um að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar.
„Óskað hefur verið eftir upplýsingum um hversu margir kennarar hafi farið í tímabundið leyfi eða ótímabundið veikindaleyfi vegna heilsuspillandi umhverfis. Í upphafi er rétt að árétta að fræðsluráð hlutast ekki til um daglegan rekstur og starfsemi þeirra stofnana sem heyra undir ábyrgðar- og eftirlitssvið ráðsins. Í erindisbréfi ráðsins kemur það skýrt fram í 17. grein segir í bókuninni.
Fræðsluráð hefur því ekki aðgang að þeim upplýsingum sem óskað hefur verið eftir enda um að ræða viðkvæmar upplýsingar um heilsufar einstakra starfsmanna sem getur varðað lög og ákvæði um persónuvernd. Þá er fræðsluráði ekki kunnugt um að veikindi starfsfólks á sviðinu séu flokkuð með þeim hætti sem getið er um í fyrirspurninni.“ Segir einnig.