Nýjast á Local Suðurnes

Enn kvartað yfir skemmtistöðum

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur falið Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málum sem tengjast kvörtunum vegna skemmtistaðarins Paddy’s við Hafnargötu.

Mál er varða hávaða og slæma umgengni við skemmtistaði við Hafnargötu hafa verið lengi í vinnslu og var skemmtistaðnum LÚX lokað fyrir skömmu síðan eftir að hafa misst leyfi til skemmtanahalds. Eigendur þess skemmtistaðar reyndu að fá leyfi á ný en því var hafnað.