Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarstjóri ræðir við eigendur skemmtistaða vegna kvartana

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á í samtali við eigendur skemmtistaðanna Paddy’s og LUX Club, sem báðir eru staðsettir við Hafnargötu, vegna fjölda kvartana sem borist hafa vegna starfseminnar undanfarin misseri.

Bæjarráð Reykjanesbæjar ræddi þessi mál á fundi á dögunum og fól bæjarstjóranum að vinna málið áfram. Í svari við fyrirspurn Sudurnes.net varðandi framvinduna sagðist Kjartan Már vera að ræða málin við eigendur staðanna en einnig að gildandi deiliskipulag Hafnargötu heimili rekstur skemmtistaða á þessum stöðum, en lögregla og heilbrigiseftirlit hafi eftirlitsskylduna á sínum herðum.