Nýjast á Local Suðurnes

Andri Rúnar jafnaði markametið – Grindavík endaði í fimmta sæti

Andri Rún­ar Bjarna­son jafnaði marka­metið í efstu deild karla í knatt­spyrnu í dag þegar hann skoraði sig­ur­mark Grind­vík­inga gegn Fjölni, 2-1. Andri Rúnar beið fram á síðustu stundu með að jafna markametið því markið kom á 88. mín­útu leiksins. Það var hans 19. mark í deild­inni.

Grinda­vík end­aði deildarkeppnina með 31 stig í fimmta sæti.